Föstudaginn 8. febrúar kemur hljómplatan Myndir út, en þar er um að ræða upptökur af vinsælustu lögum Einars Bárðarsonar. Einar fagnaði 20 ára höfundarafmæli á síðasta ári og fóru upptökur fram allt síðasta ár undir stjórn Þóris Úlfarssonar. Platan inniheldur meðal annars lögin Ég sé þig í flutningi Jóhönnu Guðrúnar, sem og hið goðsagnakennda Farin í flutningi Klöru Elíasdóttur. Þessar útgáfur hafa vakið mikla athygli í útvarpi síðustu vikur.
Í vor voru 20 ár frá því lagið Farin kom út með hljómsveitinni Skítamóral en lagið varð þeirra allra vinsælasta og sló í gegn nánast á einni nóttu. Svo fylgdu lögin eitt af öðru í kjölfarið: Birta, Spenntur, Myndir, Ennþá, Ég sé þig og fleiri. Það er tónlistarmaðurinn og upptökustjórinn Þórir Úlfarsson sem stýrir upptökum á plötunni en hún verður bæði ljúf og hrjúf í anda höfundarins, með Nashville áhrifum, en Einar hefur alla tíð sótt sinn innblástur til amerískrar country-skotinnar dægurtónlistar. Á plötunni er ætlunin að setja ákveðna heildarmynd á þessi vinsælustu lög Einars og hugmyndin er að þessi helstu verk höfundar fái nýtt og heimilislegt líf í flutningi hans og félaga.
Ég á þessum og öðrum listamönnum allt að þakka þegar kemur að minni aðkomu í tónlist. Sagan hefur oft snúið því þannig að Skítamórall eigi mér margt að þakka en það er þver öfugt. Ég á þeim allt að þakka. Þeir veðjuðu á fyrsta lagið mitt þegar frægðarsól þeirra var fyrir alvöru að taka á loft og ef þeir hefðu ekki valið að gera Farin að fyrsta útvarpslagi af plötunni Nákvæmlega, þá veit ég ekki hvernig líf mitt hefði þróast. Þannig að ég á þeim nánast allt að þakka.
Nafn plötunnar Myndir er vitaskuld tilvísun í eitt þekktasta lag Einars, en um leið eru lögin hversdagslýsingar á lífi fólks eða myndir af lífi þess, eins og höfundurinn útskýrir nafngiftina. Meðal annarra flytjenda á plötunni eru Sigga Beinteins, Magni, Birgitta Haukdal, Friðrik Ómar, Stefán Hilmarsson, Einar Ágúst, Gunni Óla, Ingó, Karítas Harpa, Birgir Steinn og þá syngur Klara dóttir Einars lag á plötunni sem upprunalega var flutt af Nylon flokknum.
Svo er það nú þannig að lífið fer í hringi. Steinunn Camilla sem var í Nylon flokknum hjá mér er eiginlega orðin hálfgerður umboðsmaður hjá mér og er að vinna í að aðstoða mig við útgáfuna á þessum disk, sem er bæði gaman og er ég í góðum höndum líka.
Höfundurinn ætlar að fagna útgáfu plötunnar með sögustund og „singalong“ tónleikum í Hvíta húsinu á Selfossi föstudagskvöldið 8. febrúar og svo í Bæjarbíói í Hafnarfirði, laugardagskvöldið 9. febrúar, ásamt fríðu föruneyti. Miðasala er hafin á báða tónleikanna á midi.is.
Úrval söngvara kemur fram með Einari á tónleikunum og hljómsveitina skipa þeir Þórir Úlfarsson á píanó og hammond, Eiður Arnarsson á bassa, Hannes Friðbjarnarson á trommur og þeir Kristján Grétarsson og Pétur Valgarð Pétursson á gítara.
Útsetningar- og upptökustjórn: Þórir Úlfarsson
1. Farinn 4:00 (Skítamórall 1998, þá sem Farin) Klara Ósk Elíasdóttir ásamt Friðriki Ómari
2. Bara í nótt 4:29 (Nylon 2004) Magni Ásgeirsson
3. Síðasta sumar 3:51 (Nylon 2004) Klara Einarsdóttir og Einar Bárðar
4. Myndir 3:42 (Skítamórall 1999) Ingólfur þórarinsson
5. Okkar líf 3:42 – (Áður óútgefið) Einar Ágúst og Einar Bárðar ásamt Stefáni Hilmarssyni
6. Birta 3:01 (Söngvakeppni Sjónvarpsins 2001) Kristján Gísla og Gunnar Óla
7. Allt 4:33 (Á móti sól 2002) Karítas Harpa
8. Tætt 3:29 (Nylon 2004) Sigga Beinteins
9. Ég sé þig 4:26 – (Björgvin Halldórsson 2002) Jóhanna Guðrún
10. Ennþá 4:35 (Skítamórall 2002) Birgitta Haukdal
11. Spenntur 4:02 (Á móti sól 2002) Gunnar Óla og Karítas Harpa
12. Allsstaðar 4:42 – (Nylon 2004) Birgir Steinn