fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fókus

Vildu fanga hráleikann í nýju kynningarmyndbandi fyrir Austurland

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 21. janúar 2019 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýtt kynningarmyndband fyrir áfangastaðinn Austurland var frumsýnt á ferðasýningunni Mannamótum í síðustu viku, en myndbandið markar upphaf nýrrar auglýsingaherferðar. Verkefnastjóri segir fyrstu viðbrögð við myndbandinu jákvæð.

„Það hefur aldrei áður verið gert heildstætt myndband um allt svæðið. Það er ekki lögð áhersla á 1-2 fyrirtæki eða staði og það er ekkert víst að fólk kveiki á hvaðan skotin eru, þótt flestir heimamanna geri það eflast,“ segir María Hjálmarsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú í samtali við Austurfrétt.

Myndbandið er eins konar örsaga sem lýsir upplifun aðkomumanneskju af svæðinu í máli og myndum og gefur áhorfendum innsýn inn í landshlutann.

Myndbandið er framleitt og tekið upp af Sebastian Ziegler, sem meðal annars kom að gerð heimildarmyndarinnar 690 Vopnafjörður, leikstjóri var Henrk Dyb Zwart og aðalhlutverkið er í höndum Nönnu Juelsbo, sem býr á Seyðisfirði.

„Sebastian hefur búið á Austurlandi og unnið á svæðinu. Við höfum aldrei lagt jafn mikla vinnu í handrit myndbands eða fá rétta fólkið til að ná helstu einkennum fram. Þetta fangar vel vinnuna sem við höfum lagt í og viðbrögðin sem við höfum fengið eru jákvæð og að þetta falli vel að þeirri ímynd sem við höfum verið að skapa okkur,“ segir María.

„Myndbandið er ekki klisjukennt heldur vildum við fanga hráleikann. Söguhetjan upplifir Austurland alein en kynnist fólki á ferðalaginu. Það sýnir líka að Austurland sé öruggt fyrir ungar konur og hægt sé að koma á veturna til að upplifa svæðið.“

María segir háleit markmið vera um dreifingu myndbandsins. Í bígerð eru fleiri myndbönd til að fylgja þessu eftir sem verða sérhæfðari. „Við erum með auglýsingastofu með okkur í vinnunni sem búin er að fara yfir okkar markhópa og sett upp herferðir sem byggja á þeim.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Perla leitaði sér aðstoðar sex árum eftir að dóttir hennar lést – „Endaði grátandi hjá heimilislækninum og sagði honum að ég gæti ekki meira“

Perla leitaði sér aðstoðar sex árum eftir að dóttir hennar lést – „Endaði grátandi hjá heimilislækninum og sagði honum að ég gæti ekki meira“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Deitið ætlaði að hafa hann að fífli – „Þessar stelpur héldu að ég væri vitlaus, sem ég er ekki“

Deitið ætlaði að hafa hann að fífli – „Þessar stelpur héldu að ég væri vitlaus, sem ég er ekki“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Simmi Vill birtir fyrstu paramyndirnar

Simmi Vill birtir fyrstu paramyndirnar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Fall norskrar konu á Austurlandi vekur mikla kátínu – „Skóladæmi um hvernig á að detta með mýkt“

Fall norskrar konu á Austurlandi vekur mikla kátínu – „Skóladæmi um hvernig á að detta með mýkt“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Níu ára sambandi Alberts og Guðlaugar lokið

Níu ára sambandi Alberts og Guðlaugar lokið
Fókus
Fyrir 5 dögum

Raunveruleikastjarnan Ingi segir varasamt að fara á stefnumót á Íslandi – „Eins og að taka þátt í rússneskri rúllettu“

Raunveruleikastjarnan Ingi segir varasamt að fara á stefnumót á Íslandi – „Eins og að taka þátt í rússneskri rúllettu“