Á Fókus er að finna umfjöllun um fólk, bæði í fréttamolum og styttri og lengri viðtölum, Tímavélina, umfjöllun um menningu: bækur, kvikmyndir og sjónvarp, leiklist, tónlist og tónleika, viðburði, próf, gjafaleiki og fleira.
Þessar greinar voru vinsælastar í Menningu á árinu.
Í bókinni Hornauga sem kom út síðustu jól skrifar Ásdís Halla Bragadóttir um hrifningu sína á hálfbróður sínum. Hún lýsir fyrstu kynnum þeirra sem sakleysislegum en spenna var í loftinu og hún fann fyrir kenndum í hans garð. Í nokkrar vikur velti hún fyrir sér hvort þráin eftir snertingu væri gagnkvæm.
Í kjölfar HM síðasta sumar sendu Rússar íslendingum kveðju. Í myndbandinu sést hópurinn Omsky Bacon vagga dátt og syngja lagið Ég er kominn heim og botna lagið með íslensku. Sumir meðlima hópsins eru jafnvel klæddir íslenska landsliðsbúningnum.
Fókus tók saman brot af þeim Íslendingum, sem hafa hlotið hina vafasömu 15 mínútna frægð.
Íslendingar sem voru frægir í fimmtán mínútur:Gripu augnablikið og hurfu
Baldvin Z leikstjóri ræðir kvikmyndi sína, Lof mér að falla, og klipparann Sigurbjörgu Jónsdóttur, sem klippti meðal annars myndina Vonarstræti, en hún átti að klippa Lof mér að falla. Hinsvegar hafði hún lengi átt við fíkn að stríða og var því miður ekki edrú þegar Lof mér að falla verkefnið fór af stað.
Poppstjarnan og öðlingurinn Páll Óskar Hjálmtýsson er listamaður sem hefur snert mörg íslensk tónlistarhjörtu á löngum og glæstum ferli. Í viðtali við Fókus ræðir hann ferilinn, skuldirnir sem hann kom sér upp úr og fleira.
Farið var yfir sögu hússins á Ásvallagötuna sem spilaði lykilhlutverk í fyrstu hryllingsmynd Íslendinga.
Þættir með Roseanne Barr í aðalhlutverki voru teknir úr sýningu, þrátt fyrir gríðarlegir vinsældir þeirra, vegna Twitter-færslu Barr.
Hætta framleiðslu á einum vinsælasta sjónvarpsþætti Bandaríkjanna
Leikhúsgagnrýnandinn Jón Viðar mætti til leiks að nýju, sumum til gleði og öðrum svo ekki. Hann fór hamförum í „come-back“ dómi sínum.
Garpur Ingason Elísabetarson frumsýndi stuttmynd sína, Regín, sem skartar stórleikkonunni Kristbjörgu Kjeld í aðalhlutverki. Myndin er byggð á sönnum atburðum en hún fjallar um þegar langamma Garps, vildi tengdason sinn, Inga Bæringsson, feigan en Ingi var þá ekki að feta beinu brautina í lífinu.