Fjölmiðlakonan Berglind Pétursdóttir, eða Berglind Festival eins og hún er ávallt kölluð, hóf í dag störf í markaðsdeild fjarskiptafyrirtækisins Síminn.
Berglind hefur starfað nokkur ár í auglýsingabransanum, nú síðast á Tjarnargötunni, og þar áður hjá ENNEMM og Íslensku auglýsingastofunni.
Fyrsti dagurinn í kaktusabúðinni. pic.twitter.com/p7pxWwWnpp
— Berglind Festival (@ergblind) January 2, 2019
Berglind hefur einnig séð um innslög í Vikan á RÚV, þætti Gísla Marteins Baldurssonar. Hún hefur einnig skrifað pistla í Fréttablaðið.