Úlfur Eldjárn tónlistarmaður hefur sett fasteign sína á Einarsnesi á sölu. Um er að ræða endaraðhús, 181 fm, á tveim hæðum ásamt bílskúr. Stórbrotið útsýni er til allra átta.
Skipulagi hússins hefur verið breytt og er það ekki fullkomlega í samræmi við upphaflegar teikningar og hluti hússins verið endurnýjaður, meðal annars var húsið klætt að utan með vönduðum álplötum árið 2002.
Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.