Í dag hefur snjóað í byggð í Ólafsfirði og á Siglufirði. Eins og meðfylgjandi myndir á Trölli.is sýna hefur sjóað töluvert í Ólafsfirði og heyrðist að einum Ólafsfirðingi varð að orði „ætli verði ekki búið að troða skíðasvæðið þegar ég kem úr vinnu í dag“.
Það er spáð norðan átt fram að helgi og lítur út fyrir ágætis helgarveður þótt kalt verði.