Þessi ágæta kona sem við vitum ekki deili á, segir í myndbandi sem deilt er á Facebook að hún hafi keypt sér aðhaldsflík og er hún fullviss um að fá maga eins og Jennifer Lopez.
Eitthvað er flíkin samt lítil og eftir mikið bras tekst konunni loksins að troða sér í hana með tilheyrandi svitakófi.
En hvernig ætli maginn á henni líti út á eftir?