Sturlaugur Haraldsson og Ivan Elí Du Teitsson standa að vefsíðunni CharityShirts.is þar sem fótboltamenn gefa eigin treyjur til styrktar góðu málefni. Ein treyja er í boði í einu, viðkomandi leikmaður velur sér góðgerðarfélag og rennur allur ágóði til þess félags.
„Við erum tveir strákar af Seltjarnarnesi sem höfum verið að vinna að skemmtilegum verkefnum saman. Bæði hafa þessi verkefni verið fyrir okkur og önnur fyrirtæki,“ segir Sturlaugur. Þeir eru báðir 27 ára, Sturlaugur starfar sem flugþjónn og Ivan sem tölvunarfræðingur og ólust þeir upp saman í Gróttu, þar sem þeir spiluðu fótbolta.
„Okkur fannst þetta skemmtilegt verkefni og þessi leið hefur ekki verið farin áður, oftast er þetta fast verð sem fyrirtæki og efnaðir hafa kannski meiri aðgang að, sem er gott mál, en okkur fast áhugavert að prófa að fara þá leið að allir geti tekið þátt,“ segir Sturlaugur aðspurður af hverju þessi leið var farin til að láta gott af sér leiða. „Við þekkjum einhverja af þessum leikmönnum, höfum keppt á móti öðrum og erum með tengingu við fleiri, einnig hafa atvinnumenn/konur verið jákvæð þegar við höfum nálgast þau til að fá treyjur.
Þetta fer þannig fram að viðkomandi leikmaður velur sér góðgerðarfélag og rennur allur ágóði af hans treyju til þess félags,“ segir Sturlaugur. „Nýr leikur byrjar annað hvert mánudagskvöld og stendur í tvær vikur, og er dregið á Facebook „live“ klukkan 19 annan hvern mánudag. Þeir sem vilja eignast treyjuna kaupa lottómiða, einn miði kostar 1.000 kr. og fær viðkomandi tölvupóst með sínu lukkunúmeri/um.“
Þessa vikuna og fram á mánudag er uppboð á treyju Sifjar Atladóttur, landsliðskonu og leikmanns með sænska liðinu Kristianstads DFF. Sif var Íslandsmeistari með Val árin 2007, 2008 og 2009, hún hefur leikið 76 leiki með íslenska kvennalandsliðinu og lék með því á Evrópumeistaramótinu árin 2009, 2013 og 2017. Hún hefur þegar leikið 134 leiki með Kristianstads DFF.
Sif er með áritaða íslenska landsliðstreyju frá EM 2017 á móti Frakklandi. Sif valdi að ágóði af hennar treyju myndi renna til Krabbameinsfélags Íslands.
Þeir sem þegar hafa gefið treyju og völdu sér góðargerðarfélag eru Aron Jóhannsson (Barnaspítali Hringsins), Rúnar Alex Rúnarsson (Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna), Kári Árnason (Barnaspítali Hringsins), og Andri Rúnar Bjarnason (Parkinsonsamtökin).
Þegar uppboði Sifjar lýkur á mánudagskvöld kl. 19, tekur næsta uppboð við. Landsliðsmaðurinn Rúrik Gíslason tekur þá við og gefur treyju til styrktar góðu málefni.
Fylgjast má með CharityShirts bæði á heimasíðu og Facebook-síðu þeirra.