Óhætt er að fullyrða að landsmenn séu í sárum yfir skilnaði tveggja dáðustu Íslendinganna í íþróttum og listum, leikkonunnar Ágústu Evu Erlendsdóttur og handboltakappans Arons Pálmasonar.
Óljósar fregnir af skilnaðinum bárust í sumar en þó var ekki á vísan að róa enda hafði parið verið í fjarbúð um nokkurt skeið. Segja má að endanleg staðfesting hafi borist þegar Ágústa Eva og Aron voru hvort á sínum listanum yfir álitlega einhleypa Íslendinga hjá bíræfnum fjölmiðli á dögunum.