Þetta telst til frétta því hingað til hefur ekki verið sérstök hefð fyrir því að meðlimir konungsfjölskyldunnar fylgi drottningunni í slíkar ferðir.
Meghan vildi að vonum líta sem allra best út og fyrir valinu varð kjóll frá ítalska tískuhúsinu Givenchy. Elegant kjóll með einskonar slá yfir axlirnar en um sig miðja bar hún snoturt belti og hafði tösku og perlueyrnalokka í stíl.
Tískuáhugafólk í Bretlandi hefur sýnt Meghan mikla eftirtekt á síðustu mánuðum en henni virðist takast mjög vel að aðlagast hefðum og reglum fjölskyldunnar.
Eins og sjá má á þessum myndum fór ákaflega vel á með Meghan og drottningunni en sú brá ekki út af vananum og klæddist sérsniðinni kápu og var með hatt í stíl. Allt er vænt sem vel er grænt.