Reyndu að afla þér upplýsinga um viðkomandi fyrirtæki. Finndu út hversu margir vinna þar og af hverju er verið að ráða nýjan starfsmann í starfið. Þú gætir komið skemmtilega á óvart í viðtalinu með því að vera með þessa hluti á hreinu.
Vertu stundvís. Mættu þessvegna korteri áður en viðtalið á að hefjast. Vertu búin að fá þér eitthvað gott að borða og ekki þamba of mikið kaffi svo þú verðir nú ekki í stresskasti þegar að þessu kemur.
Taktu með aukaeintak af ferilskránni sem þú sendir með umsókninni. Eins er ágætt að koma með frumrit af prófskírteinum og önnur plögg ef vera skyldi að einhver óskaði þess að fá að sjá þau.
Hugaðu vel að klæðnaði þínum og útliti. Miðaðu klæðnaðinn við umhverfið sem þú ert að sækjast eftir að komast í. Gættu þess að andlitsmálningin sé hófleg og ilmvatnið mátulega mikið. Reyndu að haga klæðaburðinum þannig að þér líði vel. Blár og brúnn eru litir sem eru taldir heppilegir þegar sótt er um vinnu, – þetta er víst eitthvað sálfræðiatriði.
Mundu að sá sem tekur viðtal við þig fylgist með líkamstjáningu þinni. Reyndu að leyna óörygginu (ef það er til staðar) og vertu eðlileg/ur í fasi. Sumir segja að það sé gott að fara inn á klósett og stilla sér upp í sigurvegarastöðu áður en þú gengur inn í viðtalið. Þetta á að auka á sjálfsöryggi þigg og vellíðan. Kíktu á þetta merkilega myndband þar sem Amy Cuddy lýsir þessum aðferðum.
Búðu þig undir að fá persónulegar spurningar um kosti þína og galla. Eins máttu búast við að fá spurningar úr ferilsskránni og hvers vegna þú hafir gert hitt og þetta í lífinu en ekki eitthvað annað. Undirbúðu sjálfa þig í huganum áður en þú ferð í viðtalið.
Yfirleitt eru margir kallaðir í viðtal á ráðningarstofur og síðan eru nokkrir sem komast í viðtal hjá viðkomandi fyrirtæki. Að komast í viðtal er ákveðinn sigur og því þýðir ekki að missa sjálfstraustið þótt þú fáir ekki starfið.
Það er ekkert annað í stöðunni en að reyna aftur og hugsa með sér að það hafi verið tap fyrir atvinnurekandann að fá þig ekki á vinnustaðinn.
Mundu að þú kemst langt með viljann að vopni – Gangi þér vel!