Leikkonan Kate Hudson útskýrði á Instagram í dag af hverju hún hefur verið svo fjarverandi á samfélagsmiðlum undanfarið. Ástæðan er sú að hún er ófrísk að sínu þriðja barni.
Segist Hudson aldrei hafa verið jafn veik á byrjun meðgöngunnar líkt og núna og útskýrði það fjarveru. Hudson tilkynnti kynið með krúttlegu myndbandi, ásamt kærastanum Danny Fujikawa og sonunum Ryder og Bingham.