Íris Björk Tanya Jónsdóttir sleikti sólina á Tenerife með nýfermdum tvíburadætrum sínum á meðan iðnaðarmenn unnu að því að koma nýju heimili þeirra í Garðabæ í stand. Íris Björk hefur getið sér gott orð fyrir skartgripi sína, bæði heima og erlendis, sem hún selur undir nafninu Vera Design.
„Sváfum eins og englar í nýju hálfkláruðu íbúðinni okkar fyrstu nóttina,“ sagði Íris Björk um fyrstu nóttina á nýja heimilinu.