Um kvöldið fagnar hann útkomunni með því að halda allsherjar útgáfutónleika í Iðnó en þar verður jafnframt Árni+1 úr FM Belfast honum til halds og trausts.
Leikin verða gömul lög í bland við ný og má búast við nístandi angurværð í bland við hoppandi stuð í þessu brakandi skemmtilega skemmtihúsi.
Daginn eftir þarf skemmtikrafturinn að vakna snemma því þá er ferðinni heitið í Frystiklefann á Rifi og svo er það bara landið eins og það leggur sig. Gamli góði hringurinn. Stuðboltinn þarf því að passa sig að fara ekki allt of seint að sofa.
„Heimsóttir verða nokkrir vel valdir staðir, tekið í spaða og slegið á strengi“ segir í tilkynningu.
Að sögn aðstandenda hlakkar Prinsinn mikið til ferðarinnar en þetta er hans fyrsti hringtúr einn síns liðs. „Það er ekki laust við að það sé smá fiðringur í honum, allt að því skjálfti!“
Föstudagur 27. apríl: Iðnó
Laugardagur 28. apríl: Frystiklefinn Rifi
Sunnudagur 29. apríl: Drangsnes, Malarkaffi
Mánudagur 30. apríl: Hvammstangi, Sjávarborg
Miðvikudagur 1. maí: Hvanneyri, Pub
Fimmtudagur 3. maí: Akureyri, Græni Hatturinn
Föstudagur 4. maí: Dalvík, Gísli Eiríkur Helgi
Laugardagur 5. maí: Húsavík, Hvalbakur
Sunnudagur 6. maí: Seyðisfjörður, Herðubreið
Fimmtudagur: 17. maí: Keflavík, Paddy’s
Föstudagur 18. maí: Hafnarfjörður, Bæjarbíó
Laugardagur 19. maí: Hvolsvöllur, Midgard
Sunnudagur 20. maí: Berufjörður, Havarí
Hirðin vonast til þess að landsmenn taki vel á móti Prinsinum í þeirra heimabyggð.
Forsala miða er á vefnum Tix.is