fbpx
Föstudagur 22.nóvember 2024
Fókus

Afmælisbörn dagsins: Enginn skortur á sjálfsáliti hjá þessum hrútum

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 18. apríl 2018 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

EF ÞÚ FÆDDIST 18. APRÍL, þá ertu manneskjan sem reddar sér alltaf. Þú setur þér markmið og verkefni – og þú klárar þau!

Persónuleikinn þinn er ákafur og þessi ákafi getur verið mjög smitandi. Þú ert líka frekar útsjónarsöm manneskja og átt oft auðvelt með að sjá nýjar lausnir á vandamálum. Lausnir sem aðrir komu ekki auga á.

Sumir segja að þú sért frekar mikill þverhaus og að það sé ekki hægt að semja við þig en það stafar líka oft af öfund. Þú ert gjarna manneskja sem aðrir elska að tala um enda lifir þú yfirleitt frekar áhugaverðu lífi.

Leiðist ekki að tala

Þér leiðist yfirleitt ekki að tala og yfirleitt hefur þú munninn þar sem hann á að vera. Beint fyrir neðan nefið. Þegar þú lítur í spegilinn sérðu hrikalega flottan einstakling og ekki nóg með það, hann er drullusjarmerandi líka.

Með þessa eiginleika átt þú mjög auðvelt með að kynnast nýju fólki og þó flestir elski að öfunda þig þá eru miklu fleiri sem elska að elska þig. Sjálf/ur býst þú oft við svakalega miklu af þeim sem þér þykir vænt um. Stundum mættir þú reyndar slaka aðeins á þessum kröfum. Það geta ekki allir verið  þú.

Kennari eða félagsliði

Þó þú búir yfir ótal hæfileikum má reikna með því að þú hafir valið þér starfsvettvang þar sem þér gefst tækifæri á að leiðbeina öðrum. Þú gætir til dæmis haldið utan um einhverskonar góðgjörðar málefni eða veitt þeim sem hafa orðið undir í lífinu liðsauka þinn.

Í ástum er manneskja sem fædd er þann 18. apríl yfirleitt bæði örlát og undanlátssöm. Hún setur yfirleitt maka sinn í fyrsta sæti og lætur sjálfa sig mæta afgangi en á sama tíma getur hún ekki þrifist vel ef hún fær ekki að viðra sig ein annað slagið. Það er að segja án fjölskyldunnar.

Frægir einstaklingar sem eiga afmæli 18. apríl

 

Kourtney Kardashian 18. apr 1979 sjónvarpsstjarna
Christian Collins  18. apr 1996  youtube stjarna
Helga Hlín Hákonardóttir 18. apr 1972 stjórnarmaður
James Woods 18. apr 1947 leikari
Conan O’Brien 18. apr 1963 sjónvarpsstjarna
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Cher afhjúpar skuggahliðar hjónabandsins – Íhugaði að kasta sér fram af svölum

Cher afhjúpar skuggahliðar hjónabandsins – Íhugaði að kasta sér fram af svölum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Íslensk hjón fóru á kaffihús í miðbænum – Fengu áfall þegar reikningurinn kom

Íslensk hjón fóru á kaffihús í miðbænum – Fengu áfall þegar reikningurinn kom
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fór í trekant með eiginkonunni og nágrannanum – Það rústaði hjónabandinu

Fór í trekant með eiginkonunni og nágrannanum – Það rústaði hjónabandinu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Segja atvikið í bardaganum sýna að úrslitin hafi verið fyrir fram ákveðin

Segja atvikið í bardaganum sýna að úrslitin hafi verið fyrir fram ákveðin
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Konur sem sætta sig við framkomu sem þær eiga ekki skilið eru kannski í samböndum sem þeim líður ekki vel í“

„Konur sem sætta sig við framkomu sem þær eiga ekki skilið eru kannski í samböndum sem þeim líður ekki vel í“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Lára og lyfjaprinsinn eiga von á erfingja

Lára og lyfjaprinsinn eiga von á erfingja