Róbert Wessman, forstjóri Alvogen, virðist fíla sig sérstaklega vel við Karíbahafið en þar dvaldi hann fyrir skemmstu í góðu yfirlæti ásamt unnustu sinni, Misska Kisska eins og hún kallar sig á Instagram.
Parið ákvað að borða páskaeggin sín á eyjunni Turks og Caicos sem tilheyrir eyjaklasanum norðan af Venuzuela og nutu augljóslega vel ef marka má myndirnar sem kappinn birti á Instagram síðu sinni.
Síðustu jól og áramót létu þau fara vel um sig á eyjunni Barbados en í febrúar skrapp kappinn til Costa Rica sem stendur einnig við Karíbahaf og hefur landamæri sín að Panama til suðurs og Nicaraqua til norðurs.
Aðrar eyjar á þessu fallega landssvæði eru t.a.m Cayman, Tortóla og St. Lucia hvar Amy Winehouse kunni einmitt sérlega vel við sig.
Wessman er ekki eini auðjöfurinn sem fílar sig vel við Karíbahaf.
Bossadrottningin Kim Kardashian dvaldi einmitt á sömu eyju um leið og þetta myndarlega nýja par sólaði sig á sömu ströndum en eins og sjá má á meðfylgjandi myndum af Instagram síðum beggja virðist einhver sérstök tenging á milli milljarðamæringanna tveggja. Að minnsta kosti þegar kemur að því að „pósa“. Alveg með’idda.