Reykjavíkurdætur sendu í nóvember frá sér plötuna Shrimpcocktail, en hún fær fjórar stjörnur af fimm í umfjöllun breska popptímaritsins NME. Í umfjölluninni segir meðal annars að skilaboð hljómsveitarinnar séu mikilvæg, en auk þess sé tónlistin á plötunni frábær.
Á plötunni eru níu lög, þar á meðal Ekkert Drama og Reppa Heiminn.
Reykjavíkurdætur hafa verið að slá í gegn undanfarin misseri og unnu fyrir stuttu tónlistarverðlaun Evrópusambandsins, Music Moves Europe Forward Talent Awards.