Dagur íslenskrar tónlistar verður haldinn hátíðlegur fimmtudaginn 6. desember næstkomandi.
Af því tilefni mun þjóðin syngja saman lögin Hossahossa með Amabadama, B.O.B.A með Jóipé X Króli og Vikivaka eftir Valgeir Guðjónsson við texta Jóhannesar úr Kötlum.
Útvarpsstöðvar munu flytja lögin og allir sem vettlingi geta valdið eru hvattir til að taka undir; í vinnunni, Strætó, sturtunni, úti í búð, skólanum eða bara í stofunni heima.
Sérstakir velunnarar íslenskrar tónlistar fá hvatningarverðlaun á Skelfiskmarkaðnum á fimmtudaginn en þar verða lögin að sjálfsögðu einnig flutt.
ATH.
Við mælum með að njóta myndbandsins með hljóðinu á!