Kolbrún Pálína Helgadóttir, verkefnastjóri markaðsdeildar Árvakurs og fyrrum Ungfrú Ísland.is árið 2001 er gengin út.
Sá lukkulegi er Jón Haukur Baldvinsson.
Skráði parið sig í samband á Facebook í gær og rignir hamingjuóskum yfir parið.
Kolbrún Pálína vinnur nú að þáttum um skilnað, ásamt Kristborgu Bóeli Steindórsdóttur, fyrir Sagafilm og verða þættirnir sýndir í Sjónvarpi Símans.