fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fókus

Fyndin og frekar hreinskilin lýsing á stjörnumerkjunum – TVÍBURINN

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 3. desember 2018 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Við höldum áfram með skemmtilegar og frekar hreinskilnar lýsingar á stjörnumerkjunum. Nú er það Tvíburinn ( 21. maí – 20. júní).

Allir elska Tvíburann vegna þess að allir elska geðklofa. Tvíburanum finnst hann að hálfu blanda af Megas og að hálfu blanda af Bjarna Ben, en í rauninni er það frekar Páll Óskar og Vigdís Finnbogadóttir.

Tvíburinn er framsækinn, félagslyndur og vinsæll. Hann mun hins vegar leggja neikvæða merkingu í þá lýsingu áður en hann er búinn að lesa þessa setningu. Tvíburinn keyrir skemmtilega bíla, oft utan í tré eða byggingar.

Tvíburinn er frekur og yfirþyrmandi. Hann slæst við börn og fólk í brúðkaupum, honum finnst sérstaklega gaman að slást við Vogina. Að umgangast tvíkynhneigðan Tvíbura er eins og að vera á tvöföldu deiti. Tvíburinn eyðileggur oft eigið heimili.

Tvíburinn keppir sjaldan í íþróttum, þegar hann gerir það þá er það í frisbí eða golfi.

Tvíburinn talar mjög hátt til að heyrist í honum. Þetta er óheppilegt þar sem hann er næstum alltaf að tala við sjálfan sig. Reyndar rífst hann oft við sjálfan sig þegar hann er í baði. Frægustu Tvíburar í sögunni eru Orville og Wilbur Wright. Tvíburinn er fjölhæfur, sem þýðir að hann getur borað í báðar nasir í einu.Tvíburinn er í raun ekkert meira en taugaveiklaður Vatnsberi.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Frosti úthúðar fyrrverandi vinnufélaga sínum

Frosti úthúðar fyrrverandi vinnufélaga sínum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Beverly Hills höll Bennifer formlega komin í sölu – Sjáðu myndirnar

Beverly Hills höll Bennifer formlega komin í sölu – Sjáðu myndirnar
Fókus
Fyrir 5 dögum

Eddie Vedder segist hafa verið hætt kominn – Pearl Jam hættu við tónleika í London sem margir Íslendingar ætluðu á

Eddie Vedder segist hafa verið hætt kominn – Pearl Jam hættu við tónleika í London sem margir Íslendingar ætluðu á
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikarinn steinrunninn á meðan myndband af eftirmála voðaskotsins var spilað

Leikarinn steinrunninn á meðan myndband af eftirmála voðaskotsins var spilað