Áhrifavaldurinn og förðunarfræðingurinn Huda Kattan er stödd á Íslandi, ásamt fjölskyldu sinni.
Vörumerki Huda, Huda Beauty, er metið á 550 milljónir dala og eru Instagram-fylgjendur hennar ríflega 30 milljónir.
Huda og fjölskylda hennar hafa verið dugleg að sýna frá Íslandsdvölinni á Instagram, en þau komu fyrir viku. Hafa þau meðal annars heimsótt Bláa lónið, Gullfoss og skautasvellið á Ingólfstorgi, farið í þyrluflug og á skíði í Hlíðarfjalli.
Af Instagram að dæma eru þau heilluð af landinu.