Rapparinn 24/7 er búinn að gefa út nýtt lag í samstarfi við rapparann Birgi Hákon. Lagið heitir Hvað er planið og birtist á Youtube í gærkvöldi, nú þegar er búið að horfa á það yfir 5 þúsund sinnum. 24/7, eða Hafþór Sindri, segir í samtali við DV að það sé plata væntanleg á næsta ári. „Það er plata á leiðinni, lofa,“ sagði 24/7 fullur dulúðar.
Hér má hlusta á lagið og sjá myndbandið: