Klámsíðan Pornhub er í hópi vinsælustu vefsíðna heims þó að fáir viðurkenni opinberlega að þeir skoði efnið, rúmlega 4,8 milljónir klámmyndbanda, sem þar er í boði. Alls voru heimsóknir á síðuna meira en 33 milljarðar á síðasta ári sem þýðir að daglegar heimsóknir voru yfir 90 milljónir á heimsvísu.
Í lok hvers árs tekur Pornhub saman áhugaverða tölfræði ársins fyrir heiminn og sökk ritstjórn DV það lágt að óska eftir sérstöku yfirliti fyrir Ísland. Starfsmenn klámsíðunnar voru boðnir og búnir til þess og sendu skýrslu til blaðsins.
Það leitarorð sem Íslendingar leita mest að á Pornhub bendir til þess að Íslendingar séu heimakærir með afbrigðum. Það er einfaldlega orðið „Iceland“ og því má beinlínis fullyrða að Íslendingar séu einstaklega áhugasamir um bólfarir samlanda sinna. Heimildir herma að lítið sé í boði sé leitað eftir því orði en ritstjórn DV myndi að sjálfsögðu aldrei leggjast svo lágt að leita. Þá er orðið „Icelandic“ í sjöunda sæti og sjálfreist níðstöng íslenskra karlmanna og lesbía nær svo hámarki því „Icelandic girl“ er í áttunda sæti.
„Lesbian“ er næstvinsælasta leitarorð Íslendinga og í þriðja sæti er „Fortnite“ sem vekur upp grunsemdir um óhóflega klámnotkun íslenskra ungmenna. Þá vekur athygli að leitarorðið „trans“ rýkur upp listann hjá landanum en tíðni leitar jókst um 411% á árinu. Til samanburðar hafði heimurinn lítinn áhuga á íslensku klámefni en vinsælasta leitarorð heimsins var „Lesbian“ sem er í takt við áhuga Íslendinga. Í öðru sæti er „hentai“, „milf“ í þriðja sæti, „stepmom“ í því fjórða og „japanese“ í fimmta sæti sem er að einhverju leyti á skjön við áhuga Íslendinga.
Vinsælustu leitarorð ársins á Pornhub: