„Ég hef beðið góðan guð að fyrirgefa mér í bænum mínum en ég losna ekki við samviskubitið. Ég bara losna ekki við það,“ segir athafnakonan Ellý Ármanns í stöðufærslu sinni á Facebook. Þar vísar hún í bréfasendingu til Höskuldar Hrafns Ólafssonar, bankastjóra Arion, og eftirsjá sem hún finnur fyrir.
Ellý sendi að eigin sögn Höskuldi afar andstyggilegt bréf þegar hún var nálægt því að missa heimilið sitt á síðasta ári. „Ég fæ alltaf sáran sting í hjartað þegar ég sé bankastjóra Arion,“ segir Ellý. „Mig langar voðalega mikið að biðja hann afsökunar.“
Í október á síðasta ári var Ellý ein fjögurra kvenna sem stigu í pontu á húsnæðisþingi og flutti erindi um leigumarkaðinn á Íslandi. Vísaði hún til þess að mygla og raki hefðu verið í húsnæðinu sem hún bjó í á þeim tíma. Þá sagði Ellý að leigumarkaðurinn á Íslandi ætti að vera eins og andrúmsloftið; maður eigi að vera öruggur, en sannleikurinn sé sá að við séum að kafna.
Ellý missti húsið sitt fyrir þremur árum og upplifði tímabil þar sem hún flutti með tíu ára dóttur sína á milli íbúða og herbergja víða á höfuðborgarsvæðinu. Þær mæðgur enduðu því á að flytja inn til elsta sonar Ellýjar, sem var þá 21 árs og leigði herbergi á 5. hæð í lyftulausu fjölbýlishúsi. Þar deildu þau baðherbergi og eldhúsi með íbúum í tveimur öðrum herbergjum.
Ellý býr í dag með kærasta sínum, Hlyni Jakobssyni, tónlistarmanni og einum eiganda Hornsins, í íbúð hans í Skuggahverfinu, en Hlynur var nýlega fluttur þangað úr Kópavogi, þegar leiðir þeirra Ellýjar lágu saman.