Kl. 13.00 mun hljómsveit FM Belfast koma fram í beinni útsendingu í DV tónlist.
Hljómveitin hefur verið ein allra vinsælasta danshljómsveit landsins, en hún hefur gefið frá sér fjórar breiðskífur sem allar hafa slegið í gegn bæði hér heima og erlendis, sú síðasta Island Broadcast.
Í kvöld mun svo hljómsveitin troða upp á tónleikastaðnum Hard Rock og því óvitlaust að nýta tækifærið, slökkva á sjónvarpinu, setja símann í vasann og eiga ógleymanlega stund í vinalegum faðmi með þessari frábæru hljómsveit.
Ítarlegt viðtal við FM Belfast má lesa í helgarblaði DV.