Nýjasta bók Ævar vísindamanns, sem svona dags daglega heitir Ævar Þór Benediktsson, í Þín eigin bókablokknum er Þitt eigið tímaferðalag. Bókina má lesa margoft, enda inniheldur hún 60 mismunandi enda.
Það var því við hæfi að gera auglýsingu með mörgum mismunandi endum. Í skemmtilegri auglýsingu býður Ævar áhorfendum að velja þrjá mismunandi enda: söng hans, alla bókina eins og hún leggur sig eða kósí lestrarstund í rauntíma. Þú átt valið.