Eins og mörgum er kunnugt hefur verið um töluvert um hvassviðri víða um landið síðustu daga. Viðvaranir bárust frá Veðurstofu Íslands á dögunum um aukna fokhættu og var fólk beðið um að sýna aðgát. Þetta gildir meðal annars um fólk sem þarf að festa ruslatunnur eða ganga frá trampólíninu í garðinum.
Þessi fyrirmæli hafa ekki borist til einstaklingsins sem birti ofangreinda ljósmynd á undirsíðunni reddit-Iceland með undirskriftinni „Gleðilega desemberlægð, allir saman.“
Ummælin hafa ekki sparað kostulegar lýsingar og segir einn að það séu engin jól án fljúgandi trampólína.
„Af hverju virðist vera svona mikið af fólki sem á trampólín á Íslandi, og er alveg skítsama hvað verður um þau?“ spyr annar notandi og bætir við: „Er þetta fótanuddtæki nútímans?“
Við því svarar annar notandi á sannri íslensku: „Þetta reddast.“