Arna Ýr Jónsdóttir, fyrrum Ungfrú Ísland og Miss Universe Iceland og Vignir Þór Bollason kírópraktor, eiga von á sínu fyrsta barni. Arna Ýr greindi frá fréttunum á Instagram um helgina.
„Lítið kraftaverk á leiðinni í júní, lífið er of gott við okkur,“ skrifar Arna Ýr við mynd þar sem parið heldur á sónarmyndum. Parið flutti nýlega í sína fyrstu íbúð og hefur Arna Ýr sýnt frá því á Instagram. Fókus óskar parinu innilega til hamingju með bumbubúann og íbúðina.
https://www.instagram.com/p/BrIqmsXnzfT/