Dagbjört Rúriksdóttir söngkona og samfélagsmiðlastjarna gaf út lag í dag.
Lagið heitir Dansa ei lengur ein, en kærasti Dagbjartar Gísli Máni Rósuson, aðstoðar hana við lagið.
„Þetta lag er afar nálægt hjarta mínu og samdi ástin mín, Gísli Máni gítarspilið og ég textann/laglínuna,“ skrifar Dagbjört í færslu sem hún birtir um lagið á Facebook.
https://www.instagram.com/p/Bp4QfNRAUmB/?utm_source=ig_embed
Þetta er fyrsta lagið sem Dagbjört gefur út sem sóló söngkona, en hún er hluti af stúlknabandinu Zinnia sem sendi á dögunum frá sér sitt fyrsta lag, Gemmér.