fbpx
Sunnudagur 15.desember 2024
Fókus

Heiða Rún tilnefnd sem besta leikonan fyrir Stellu Blómkvist

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 7. nóvember 2018 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heiða Rún Sigurðardóttir (Heida Reed) er tilnefnd sem besta leikkonan á C21’s International Drama Awards fyrir túlkun sína á Stellu Blómkvist í samnefndum sjónvarpsþáttum framleiddum af Sagafilm sem sýndir voru í Sjónvarpi Símans.

 

Í flokknum um bestu leikkonuna eru tilnefndar, ásamt Heiðu, Claire Foy sem lék drottninguna í The Crown, Amy Adams fyrir Sharp Objects, Jodie Comer og Sandra Oh fyrir leik sinn í Killing Eve og Laura Linney fyrir Ozark.


Heiða Rún hefur gert það gott í leiklistarheiminum en hún lék meðal annars í Poldark sem sýndir hafa verið á RÚV síðustu ár. Þættirnir um Stellu Blómkvist slógu í gegn hér á landi og hafa þeir verið á flakki um heiminn, en þeir hafa verið sýndir í Frakklandi, Spáni, Belgíu, Hollandi og á Norðurlöndunum svo eitthvað sé nefnt.

Verðlaunin verða veitt við hátíðlega athöfn á St. Pancras Renaissance hótelinu sem hluti af C21’s Content London ráðstefnunni þann 28. nóvember.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Allir mættu nema Mbappe
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fór að gráta eftir að hafa stundað kynlíf með 100 karlmönnum

Fór að gráta eftir að hafa stundað kynlíf með 100 karlmönnum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Vandræði í paradís? – Hafdís og Kleini hafa eytt öllum myndum af hvort öðru á Instagram

Vandræði í paradís? – Hafdís og Kleini hafa eytt öllum myndum af hvort öðru á Instagram