Nýleg bresk rannsókn leiddi í ljós að um 43% kvenkyns tónleikagesta hafa upplifað kynferðislegt áreiti á tónlistarhátíðum. Iceland Airwaves og Druslugangan hafa tekið höndum saman í að reyna markvisst að sporna gegn þessum raunveruleika.
Samstarfið felst í því að öryggisstarfsfólk hátíðarinnar fá leiðbeiningar frá Hrönn Stefánsdóttur hjúkrunarfræðingi og yfirmanni Neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis um það hvernig best er að bregðast við ef hátíðargestur verður fyrir kynferðislegu áreitni eða ofbeldi. Sérstök veggspjöld verða sett inn á öll salerni á tónleikastöðum hátíðarinnar til þess að fræða fólk um hvað er til ráða ef þau verða fyrir áreiti. Einnig verða haldnar umræður á ráðstefnuhluta hátíðarinnar þar sem farið verður yfir samstarfið og reynt að kryfja það hvað tónleikahaldarar og tónleikagestir geta gert til þess að standa með þolendum áreitis og ofbeldis og hvernig hægt er að sporna við slíkri hegðun.
Gestir hátíðarinnar eru einnig hvattir til þess að passa upp á hvort annað og láta gæslu hátíðarinnar vita strax ef þau sjá eitthvað sem ekki virðist vera í lagi. Áreiti og ofbeldi af öllu tagi er ekki liðið á Iceland Airwaves. Gestir hátíðarinnar eiga rétt á því að skemmta sér án þess að verða fyrir áreiti eða ofbeldi.
Iceland Airwaves hátíðin fer fram í 20. sinn dagana 7. – 10. nóvember í miðborg Reykjavíkur.