Hvernig eru ofurhetjur eiginlega og geta allir orðið ofurhetjur?
Sigrún Eldjárn rithöfundur les um Sigurfljóð ofurhetju sem hjálpar öllum. Hlustendur eru hvattir til að mæta með skikkju á herðum sér eða í annars konar hetjubúning og leyfa ímyndunaraflinu að leika lausum hala.
Verið velkomin í sögustund með Sigrúnu Eldjárn og Sigurfljóð í Menningarhúsinu í Árbæ á morgun, sunnudag, kl. 14.30.