Kvikmyndin Mortal Engines var heimsfrumsýnd í London á þriðjudag. Kvikmyndin byggir á fyrstu bók bókaseríu rithöfundarins Philip Reeve, er í leikstjórn Christian Rivers, og hin 29 ára gamla Hera Hilmars leikur kvenhetju myndarinnar, Hester Shaw.
Hera mætti ásamt öðrum aðstandendum myndarinnar á frumsýninguna og var stórglæsileg á rauða dreglinum í kjól frá hinum heimsþekkta hönnuði Oscar de la Renta.
Sögusvið Mortal Engines er fjarlæg framtíð þar sem jarðarbúar þrífast við erfiðar aðstæður. Miklar hamfarir hafa þó orðið, en mannfólkinu hefur tekist að aðlagast aðstæðunum, með ákveðnum fórnarkostnaði þó.
Hera ávarpaði blaðamenn við frumsýninguna í London: „Uppreisn hefur alltaf verið tengd við æsku, en svo þarf ekki að vera. Það er unggæðið í okkur öllum sem segir: Þetta er það sem ég vil fyrir framtíðina, þetta er það sem ég vil vera og þetta er veröldin sem ég vil búa í.
Það hlýjar manni um hjartað þegar fólk berst fyrir því sem það trúir á. Og það fær mann til að trúa því að við getum búið í heimi sem við viljum búa í.“
Hera bætti við að hægt væri að læra samfélagslegar reglur af myndinni. „Ég tel að það séu hlutir að gerast í heiminum í dag sem er erfitt að meðtaka. Ég vona að við getum breytt því og fundið leið til að sameinast sem ein heild til að geta haldið áfram lífi okkar hér.
Þetta snýst um hvað þú vilt gera fyrir þig og hvað þú vilt gera fyrir heildina, og kannski fer þetta ekki alltaf saman, og kannski þurfum við að breyta hugsunarhætti okkar og fara að taka eftir því sem er að gerast fyrir utan okkar eigin þægindaramma.“
Mortal Engines er frumsýnd á Íslandi í desember.