Við á Fókus höfum áhuga á stjörnuspeki og þegar við rákumst á skemmtilega og frekar hreinskilna lýsingu á stjörnumerkjunum þá gátum við ekki annað en ráðist í að þýða og staðfæra. Við byrjum á merkinu sem er núna, Bogmanninum ( 22. nóvember – 21. desember) og síðan birtist eitt merki á dag.
Bogmenn eru fæddir ævintýramenn. Þeir elska að kremja kóngulær með berum höndum og reyna að ganga á baðherbergið um miðjar nætur með ljósin slökkt. Þeir myndu frekar taka áhættuna á ævilangri örkumlun, en að fara auðveldu leiðina. Bogmaðurinn elskar að skemmta vinum, fjölskyldu og ókunnugum.
Bogmaðurinn er hávær og hefur enga félagslega fágun. Hann elskar að hneyksla fólk.
Dýr og lítil börn elska Bogmanninn. Sem er slæmt því fullorðnir þola hann yfirleitt ekki. En Bogmaðurinn væri frábær sem sirkuslistamaður eða flakkari. Bogmaðurinn notar danshreyfingar til að lýsa heimspekilegum viðfangsefnum. Barmmerki og bílalímmiðar með dónalegum kvótum eru aðalsmerki Bogmannsins. Þeir henda mat á dýrum veitingastöðum og þeir eru týpan sem talar stöðugt í messu. Aldrei fara heim með Bogmanninn til að kynna hann fyrir foreldrum þínum. Hann mun hneyksla móður þína og stríða pabba þínum.
Bogmanninum er lífsins ómögulegt að fylgjast ekki með og vera samkvæmt nýjustu tísku.