Ásta Björk Ívarsdóttir og dansfélagi hennar, leikarinn Simon Stenspil, eru sigurvegarar í þáttunum Vild med dans sem sýndir eru á dönsku sjónvarpsstöðinni TV2. Um er að ræða dönsku útgáfuna af þáttunum Dancing With The Stars, sem hétu í íslenskri útgáfu Allir geta dansað.
Ásta Björk er lærður dansari og var fagdansari í þáttunum, en hún hefur áður tekið þátt sem svokallaður myndavéladansari. Þættirnir njóta gríðarlegra vinsælda í Danmörku, en þáttaröðin var sú fimmtánda í röðinni frá því að þættirnir hófu sýningar árið 2005. Þetta er í fyrsta sinn í sögu þáttanna sem fagdansari sigrar í fyrstu tilraun.
„Ég er glaður og stoltur. Þetta er tryllt,“ sagði Simon þegar úrslitin voru ljós og hrósaði hann Ástu Björk. Jens Werner, einn dómaranna, sagði að dans parsins hefði verið besti úrslitadans sem hann hafi séð. Þau fengu fullt hús stiga fyrir lokadansinn, og alls 114 stig fyrir kvöldið, en þau fluttu þrjá dansa.
Hér má sjá sigurdans Ásta Bjarkar og Simons og tilkynningu úrslitanna.
https://www.instagram.com/p/BpuQkpoAy23/
https://www.instagram.com/p/BoBW84egSQr/
https://www.instagram.com/p/BqkIpHrH_iE/