Guðjón Sigmundsson eða Gaui litli segir frá því á Facebooksíðu Hernámssetursins að hann hafi verið að laga til og gera smá breitingar á Hernámssetrinu í dag.
„Það verður opið á safninu á sunnudaginn kl. 14 og þá ætla ég að segja sögur af hernáminu og ástandinu á árunum 1940 til 1945. Það eru allir velkomnir. Hernámssetrið hefur stækkað mikið og það hafa borist margir fallegir hlutir sem vert er að skoða. Hlakka til að sjá ykkur.“
Gaui fékk nýlega vináttuorðu fyrir vináttu og samvinnu Rússlands og Íslands, sjá hér.