Emmsjé Gauti sendi í gær frá sér lagið Mér líður vel af plötunni FIMM.
Freyr Árnason leikstýrir myndbandinu við lagið, en það er obbosí ehf. sem framleiðir.
Emmsjé Gauti er umvafinn eldri konum, ömmum, í myndbandinu og segir hann á Facebook-síðu sinni: „Ég vil þakka öllum þessum frábæru ömmum sem tóku þátt í þessu verkefni með okkur. MASSÍF ÁST.“