Sigurbjörg Þrastardóttir fagnaði í gær útgáfu nýjustu bókar sinnar, Hryggdýr með útgáfuhófi í kaffihúsi Ásmundarsals.
Sigurbjörg hefur sent frá sér ljóð, skáldsögur og leikrit. Verk hennar, Blysfarir, var tilnefnt til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Ljóð hennar og sögur hafa birst í þýðingum viða um heim, allt frá Frakklandi til Kólumbíu.