Síðasta úthlutun hönnunarsjóðs á árinu fór fram fimmtudaginn 8. nóvember. 108 umsóknir bárust sjóðnum um ríflega 174 milljónir, en hægt er að sækja um styrki í fjórum flokkum; þróunar- og rannsóknarstyrki, verkefnastyrki, markaðs- og kynningarstyrki og ferðastyrki.
Þetta er fjórða úthlutun á árinu 2018 en sjóðurinn úthlutar 50 milljónum á ári. Að þessu sinni úthlutaði sjóðurinn 19 milljónum til 19 verkefna og 1 milljón í ferðastyrki til 9 aðila.
Athöfnin fór fram í húsnæði Hönnunarmiðstöðvar Íslands Aðalstræti 2.
Hæsta styrkinn hlaut Helga Lára Halldórsdóttir fyrir verkefnið OBJECTIVE að upphæð 2.5 milljónir. Hafsteinn Júlíusson og Karítas Sveinsdóttur – HAFSTUDIO hlutu 2 milljónir fyrir verkefnið SKÓLASTÓLL – NÆSTA KYNSLÓÐ og Magnea Guðmundsdóttir og Brynhildur Pálsdóttir hlutu 1.5 milljón fyrir verkefnið INNI Í YFIRBORÐINU.
Styrki á bilinu 500.000 – 1 milljónir króna hlutu eftirfarandi aðilar:
- Arkitektar Hjördís & Dennis ehf. fyrir verkefnið Áhrif frá Bretlandseyjum, mannvirki á Íslandi
- Kristín Sigfríður Garðarsdóttir fyrir verkefnið DUFTKER
- Magnús Albert Jensson fyrir verkefnið Hönnun bíllaus hverfis fyrir BFS
- Signý Þórhallsdóttir fyrir verkefnið Morra Sveigur
- Ýr Jóhannsdóttir fyrir verkefnið Þættir
- Hörður Lárusson fyrir verkefnið Fáni fyrir nýja þjóð
- Þórey Björk Halldórsdóttir og Baldur Björnsson fyrir verkefnið +Eilífð – &AM þróar upplifunar vörulínu.
- Arnar Már Jónsson fyrir verkefnið Arnar Már Jónsson Fatalína
- Birna Geirfinnsdóttir og Bryndís Björgvinsdóttir fyrir verkefnið Ferill og störf Kristínar Þorkelsdóttur
- Elísabet V. Ingvarsdóttir og Arndís S. Árnadóttir fyrir verkefnið Hönnun á Íslandi – Ágrip af sögu
- Erna Bergamann Björnsdóttir fyrir verkefnið Swimslow
- Harpa Einarsdóttir fyrir verkefnið MYRKA & LAVASTRACT
- Hlín Reykdal fyrir verkefnið Crown by Hlín Reykdal, markaðssókn
- Katrín Ólína Pétursdóttir fyrir verkefnið Aska – Rannsókn, aðferðir til framleiðslu Duftkerja úr íslenskri jörð.
- Kolbrún Sigurðardóttir fyrir verkefnið Tölum um íslenskt keramik
- Sigríður Heimisdóttir fyrir verkefnið Gler líffæri; líkaminn.
Þeir aðilar sem hlutu ferðastyrki eru eftirfarandi:
- Arna Arnardóttir
- Att Arkitektar ehf.
- Birgir Grímsson
- Borghildur Indridadottir
- Dröfn Sigurðardóttir
- Fatahönnunarfélag Íslands
- KRADS
- Maria Th. Ólafsdóttir
- Valdís Steinarsdóttir (2)
Upplýsingar um hönnunarsjóðs má finna á sjodur.honnunarmidstod.is