Í kvöld kl. 19 heldur Jóhann Björnsson heimspekikennari fræðsluerindi á vegum Félags heimspekikennara í Iðu Zimsen, Vesturgötu 2a.
Fjallað verður um útgefnar kennslubækur Jóhanns og aðferðir til að beita þeim í kennslu. Erindið er opið öllu áhugafólki um heimspekikennslu og beitingu heimspekilegrar aðferðar í skólastofunni. Aðgangur er ókeypis.