Mikil umræða hefur verið í samfélaginu undanfarið um heilbrigðiskerfið á Íslandi og hvernig það þurfi mögulega að bæta það. Þessi kind ásamt tveimur lömbum sínum hefur hins vegar lítið hlustað á þá umræðu og skellti sér á heilsugæslustöðina á Eskifirði. Í samtali við Austurfrétt sagði Sævar Guðjónsson ferðaþjónustubóndi á Eskifirði að það væri augljóslega ekki fjárskortur hjá heilsugæslunni á Eskifirði.
Sævar segir einnig að það sé búið að gera nokkrar tilraunir að ná henni en án árangurs. „Þessi kind er búin að stríða mönnum í allt haust. Meira að segja snéri einn smalinn sig á fæti þegar hann var að eltast við hana og lenti á heilsugæslunni, þannig að þetta er hálf kómískt allt saman. Þær eru væntanlega komnar til síns heima núna og vonandi heilar heilsu.“
Ekki fengust svör frá heilbrigðisráðuneytinu um hvort um sé að ræða auka fjárveitingu.
Hér að neðan má sjá myndbandið sem Sævar náði af heimsókninni.