Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, fjármagnar starfssemi sína að langmestu leyti með sjálfsaflafé. Þar gegnir sala jólakorta veigamiklu hlutverki. Með því að kaupa jólakort félagsins, tekur þú virkan þátt í að styðja til sjálfstæðis blinda og sjónskerta einstaklinga á öllum aldri og stuðlar þannig að auknum lífsgæðum þeirra og um leið betra samfélagi.
Jólakortin og merkispjöldin eru með myndinni Bjartur dagur á aðventu eftir Svövu Sigríði Gestsdóttur, myndlistarmann.
Hægt er að kaupa kortin hjá Blindrafélaginu, Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík, sími 525 0000, í vefverslun á www.blind.is eða senda tölvupóst á netfangið blind@blind.is.
Blindrafélagið hvetur alla velunnara sína að styðja félagið með kaupum á þessum fallegu jólakortum og merkispjöldum.