Sjónvarpskonan Edda Sif Pálsdóttir og kærasti hennar, Vilhjálmur Siggeirsson, framleiðandi á RÚV, hyggjast nú flytja sig um set, en Vilhjálmur hefur sett íbúð sína í Furugrund Kópavogi í sölu.
„Keypti mér íbúð og tók Eddu með mér í IKEA. Hún flutti svo sjálf inn með Fróða og nú hefur þeim tekist að lokka mig annað. Ég er reyndar mjög spenntur fyrir því en mæli eindregið með þessari íbúð. Það er gott að búa í Kópavogi,“ segir Vilhjálmur á Facebook.
Íbúðin er sextíu fermetra tveggja herbergja íbúð á þriðju hæð. Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.