Ragga Nagli er klínískur heilsusálfræðingur og einkaþjálfari. Á Facebook heldur hún úti vinsælli síðu þar sem hún birtir reglulega pistla um hreyfingu, mataræði og fleira. Í þessum fjallar hún um hvað heilsusamlegt líferni er.
Hvað er heilsusamlegt líferni?
Að stilla klukkuna á óguðlega og vera mættur á brettið í ræktinni klukkan núllsex.
Eða sofa út til átta af því þú varst í gleðskap.
Hvort er heilsusamlegt mataræði?
Að svolgra grænkálssjeik í hádeginu.
Eða fara út með Lóu vinkonu í börger af því þú nennir ekki að elda.
Hvað er heilsusamlegt kvöld?
Að fara í jógatíma eftir kvöldmat.
Eða púlla upp joggingbuxurnar og Netflixa kvöldið í döðlur.
Að fara út að skokka eftir vinnu.
Eða dúllast í Smáralind með mömmu gömlu?
Svarið er allt að ofanverðu.
Það er margjórtruð tugga að heilsan snúist um að hreyfa skankana og gúlla hollustu.
En heilsan er líka að hlusta á líkamann og hvíla okkur.
Að sofa út þegar við erum þreytt
Að sinna félagslegum tengslum.Að rækta frændgarðinn.
Að mynda djúpar samræður.
Að slaka á.Það er ekki gott að sofa alltaf út, fara aldrei í ræktina, slafra fröllur og bernes í hverju hádegi og hámhorfa á allar seríur á Netflix.
Það er heldur ekki heilsusamlegt að hamast ómanneskjulega oft og mikið í ræktinni
Það er ekki heilsusamlegt að vera með matarkvíða og forðast veislur og saumaklúbba.
Að láta félagslífið sitja á hakanum því þú ert að drukkna í verkefnum.Heilsa er að finna hið gullna jafnvægi í að sinna grunnstoðum heilsunnar.
Hreyfing
Mataræði
Félagslíf
Jákvæð hugsun
Streita
Svefn