Auglýsing ON ratar inn í Facebook-hópinn Markaðsnördar, ásamt spurningunni:
„Spurning hvort ON hefði átt að endurskoða slóganið sitt í ljósi frétta síðasta mánuðinn!“
Er þar vísað til máls Áslaugar Thelmu Einarsdóttur, sem steig fram fyrr í þessum mánuði og sagðist hafa verið rekin fyrir að kvarta undan óviðeigandi framkomu þáverandi framkvæmdastjóra Orku náttúrunnar. Nýjustu fréttir í því eru að Áslaug Thelma hitti Helgu Jónsdóttur, starfandi forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur, á fundi á fimmtudag í síðustu viku.
Fleiri mál tengd ON komu upp í kjölfarið og jafnvel eru öll kurl ekki komin til grafar enn þá.