Svala Björgvins gaf fyrir helgi út nýtt lag, Karma, sem er af væntanlegri plötu hennar, sem koma mun út fyrri hluta árs 2019. Lagið er samið af Svölu sjálfri, Rob Ellmore, Einari Egilssyni og Colin Mowgli og var það unnið Í Los Angeles fyrr á þessu ári.
Svölu langaði að semja lag sem fjallaði á einfaldan hátt um hugtakið karma, því það er í öllum litlu einföldu og ljúfu hlutunum í lífinu.
Smellur með góðan boðskap, sem kemur manni í stuð.