Það var sannkallaður (söng)kvennakraftur í Hörpu í gærkvöldi, þegar ABBA dívurnar og Spice Girls stúlkurnar „tókust“ á í búningsherbergi ABBA dívanna.
Þær Selma Björnsdóttir, Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, Stefanía Svavarsdóttir og Regína Ósk Óskarsdóttir sungu ABBA sýninguna í níunda sinn fyrir fullum sal í Eldborgarsal Hörpu.
Elísabet Ormslev, Svala Björgvinsdóttir og Salka Sól Eyfeld komu hins vegar fram sem GRL PWR (Girl Power/Kvennakraftur) á árshátíð Deloitte sem fram fór í Norðurljósasal Hörpu.