Á kvennafrídaginn miðvikudaginn 24. október hefst sala í versluninni hjá Hlín Reykdal, Fiskislóð 75. Seld verða URÐ – ilmkerti og einnig verða til sýnis og sölu brjósta – vatnslitamyndir Lindu Jóhannessdóttur. Allur söluágóði rennur til styrktarfélagsins Göngum saman.
Styrktarfélagið Göngum hefur veitt rúmar 90 milljónir í styrki á 11 árum. Þann 11. október var árleg styrkveiting Göngum saman. Veittar voru 10 milljónir króna í rannsóknarstyrki til sjö vísindamanna á sviði grunnrannsókna á brjóstakrabbameini. Félagið hefur alls úthlutað rúmum 90 milljónum króna til grunnrannsókna á brjóstakrabbameini frá stofnun félagsins árið 2007.
Ilmkertið Brjóstbirta er sérstaklega hannað af URÐ fyrir Göngum saman. Ilmurinn er ferskur, hreinn, og upplífgandi. Brjóstbirta er orðaleikur er minnir á tilgang Göngum saman. Brjóstbirta – kertið ber meðal annars keim af plómum, greipávöxtum, sedrusviði og hvítum blómum og fleira.
Listakonan Linda Jóhannsdóttir sem starfar undir nafninu Pastelpaper myndskreytti kertin en brjóstamyndirnar hennar eru hluti af nýrri línu sem heitir einfaldlega Brjóst og rennur ágóði af sölu myndanna til Göngum Saman. Myndirnar eru unnar í blandaðri tækni.
Gleðistundin er frá kl. 16-18 og eru allir velkomnir.