Bandaríski húðflúrarinn Picasso Dular sem kom fram í sjónvarpsþáttaseríunni Ink master 2016 er á leiðinni til Íslands. Hann mun flúra á tattoostofunni Black Kross í Hamraborg Kópavogi.
Picasso Dular þótti einn af bestu listamönnum þáttarins, þrátt fyrir að hann hafi ekki sigrað. Picasso byrjaði að flúra um tvítugt, en stíllinn hans er margbreytilegur og flúrar hann allt frá New School niður í súrealískan stíl og þaðan úr portrait yfir í realistic myndir.
Á Instagram er hann með um 27 þúsund fylgjendur, en hann þykir afar fær á nálinni.
Picasso verður á stofunni frá 7.-17. nóvember. Hægt verður að bóka tíma í gegnum Facebooksíðu Black Kross Tattoo eða í síma 680-6662.