Fyrir mánuði síðan sögðum við frá því að Sólrún Diego hreingerningarsnappari og metsölubókarhöfundur, og Frans Veigar Garðarsson, kærasti hennar, keyptu nýverið einbýlishús í Mosfellsbæ.
Lestu einnig: Sólrún Diego kaupir 320 fermetra höll – Gert ráð fyrir vetrargarði og lítilli tjörn – Sjáðu myndirnar
Réðust þau í endurbætur á húsinu sem standa enn yfir. Einnig fengu þau sér öryggiskerfi í allt húsið frá Öryggismiðstöðinni og í myndbandi sem birtist á Facebook-síðu Öryggismiðstöðvarinnar lýsir Sólrún kerfinu og hversu mikið parið elskar það.